fbpx

[et_pb_section fb_built=“1″ _builder_version=“4.4.1″ custom_padding=“5px|||||“][et_pb_row column_structure=“1_3,1_3,1_3″ _builder_version=“4.4.1″ custom_margin=“-37px|auto|18px|auto|false|false“ custom_padding=“||21px|||“][et_pb_column type=“1_3″ _builder_version=“4.4.1″ custom_padding=“70px||0px||false|false“][et_pb_button button_text=“Tilbaka“ button_alignment=“left“ _builder_version=“4.4.1″][/et_pb_button][/et_pb_column][et_pb_column type=“1_3″ _builder_version=“4.4.1″][et_pb_image src=“https://isbudvesturbaejar.is/wp-content/uploads/2019/09/logo_web@4x.png“ _builder_version=“4.4.1″ width=“68%“ module_alignment=“center“][/et_pb_image][/et_pb_column][et_pb_column type=“1_3″ _builder_version=“4.4.1″][/et_pb_column][/et_pb_row][et_pb_row _builder_version=“4.4.1″ width=“70.3%“][et_pb_column type=“4_4″ _builder_version=“4.4.1″][et_pb_text _builder_version=“4.4.1″]

SKILMÁLAR

 

  1. UPPLÝSINGAR UM SELJANDA

Ísbúð Vesturbæjar ehf. kt. 520602-2750, Hagamel 67, 107 Reykjavík, sími 552-3330, VSK-númer 75555.

Við biðjum viðskiptavini okkar um að vinsamlegast lesa skilmálana vandlega yfir áður en verslað er í vefverslun okkar. Með því að nota vefverslun Ísbúð Vesturbæjar samþykkir þú eftirfarandi skilmála.

  1. PERSÓNUUPPLÝSINGAR

Við virðum friðhelgi og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er í vefverslun þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Upplýsingarnar eru eingöngu nýttar til þess að ganga frá pöntun. Kaupsaga er þó vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst. Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæðum okkar. Ef það þarf að fletta upp pöntun þá er einungis hægt að sé tegund greiðslu. Ísbúð Vesturbæjar ehf. deilir undir engum kringumstæðum persónuupplýsingum með þriðja aðila.

  1. VÖRUÁBYRGÐ

Ekki er hægt að skila vörum sem keyptar eru í vefverslun Ísbúðar Vesturbæjar. Ef óánægja kemur upp með gæði eða nákvæmni upplýsinga um það sem keypt er í vefverslun eru viðskiptavinir hvattir til þess að hafa samband við fyrirtækið. Vinsamlegast takið fram hvað það var sem óánægja var með og sendið samhliða pöntunarnúmer skal sent á netfangið katla@isbudvesturbaejar.is

  1. NÁKVÆMNI UPPLÝSINGA

Við gerum okkar allra besta til þess að vöruupplýsingar og myndir séu réttar í vefverslun okkar. Upp geta komið tilvik þar sem þar sem munur er á litbrigði eða lagi á vörum og/eða umbúðum. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.

  1. VERÐ

Uppgefið verð í vefverslun okkar er í íslenskum krónum og er virðisaukaskatturinn innifalinn í verðinu. Athugið að verðbreytingar hjá Ísbúð Vesturbæjar ehf. eru ekki auglýstar fyrirfram. Afhendingarleið er valin í lok pöntunar en sú leið getur leitt til aukins kostnaðar vegna sendingar. 

  1. FERILL PANTANA

Þegar viðskiptavinur hefur lokið við að panta í vefverslun fær hann sendan tölvupóst með pöntunarnúmeri sem og kvittun fyrir vörukaupunum. Kvittun jafngildir þó ekki afgreiðslu og áskiljum við okkur rétt til að bakfæra pöntun ef grunur um einhvers konar misferli vaknar. Pantanir sem sækja á í verslun verða afgreiddar á umbeðnum tíma í verslun okkar í Skipholti 50c ef um hefðbundin opnunartíma er að ræða. Annars um leið og Ísbúð Vesturbæjar opnar næsta dag á þeim tíma sem óskað er eftir. Pantanir eru afgreiddar alla virka daga og er heimkeyrsla er í boði á höfuðborgarsvæðinu og keyrt heim samdægurst ef pöntun berst fyrir klukkan 18:00.

  1. GREIÐSLULEIÐIR

Eftirfarandi kort er hægt að nota í vefverslun Ísbúð Vesturbæjar:

Visa
Mastercard
American Express
Diners
Maestro

  1. GREIÐSLUVANDAMÁL

Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við í Ísbúð Vestubæjar ehf. okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.

  1. ÖRYGGI VEFSVÆÐIS

Við leggjum okkur fram við að tryggja öryggi viðskiptavina okkar og notum bestu tæknina til þess að tryggja að allar greiðslur séu öruggar. Lokaskrefið í pöntunarferlinu flytur viðskiptavininn yfir á https-svæði þar sem viðskiptavinur setur inn kortaupplýsingar. Við mælumst til að viðskiptavinir okkar séu alltaf með nýjustu útgáfu af vafra sem völ er á.

Ísbúð Vesturbæjar ehf. vistar engar kortaupplýsingar hvorki á vefþjónum okkar né á vefsvæðum.

  1. SENDINGAR

Við gerum okkar besta til að tryggja góðar og hraðar sendingarleiðir. Sendingartíminn veltur þó alltaf á staðsetningu viðtakanda og umfangi pantana. Ísbúð Vesturbæjar ehf. býður eingöngu uppá heimsendingu innan höfuðborgarsvæðisins.

  1. BREYTINGAR Á PÖNTUN

Pantanir eru afgreiddar á virkum dögum kl. 08:00-20:00. Ef þú þarft að breyta pöntun eftirá getur hlotist af því viðbótarkostnaður. Vinsamlegast vísið í pöntunarnúmer ef breyta þarf pöntun og sendið allar fyrirspurnir á katla@isbudvesturbaejar.is eða hringið í síma 865-4565.

  1. HÖFUNDARÉTTUR

Allt efni í vefverslun, þ.m.t. vörumerki, myndir, texti, ljósmyndir, grafík, hljóð og mynd, er í eigu Ísbúð Vesturbæjar ehf. og er höfundarvarið.

Ekki er heimilt að nota, afrita eða selja efni af síðunni án skriflegs samþykkis frá Ísbúð Vesturbæjar ehf.

  1. ÁBYRGÐ OG SKULDBINDING

Vefverslun þessi er opin öllum en við erum ekki ábyrg fyrir rangri notkun síðunnar né erum við skuldbundin til að eiga alltaf allar vörutegundir til á lager. Ekki er hægt að skila vörum keyptum á netverslun. Ef óánægja kemur upp með gæði eða nákvæmni upplýsinga um það sem keypt er í vefverslun eru viðskiptavinir hvattir til þess að hafa samband við fyrirtækið. Vinsamlegast takið fram hvað það var sem óánægja var með og sendið samhliða pöntunarnúmer skal sent á netfangið katla@isbudvesturbaejar.is

  1. Leyfi
    Ísbúð Vesturbæjar ehf. hefur leyfi til að starfrækja ísbúð. Starfsleyfið er gefið út samkvæmt ákvæðum laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir með síðari breytingum og laga nr. 93/1995 um matvæli þegar um matvæli er að ræða.
    Nafn leyfishafa: Ísbúð Vesturbæjar ehf
    Heimilisfang: Hagamelur 67, 107 Reykjavík
    Kennitala: 520602-2750

Varnarþing

Rísi réttarágreiningur í tengslum við skilmála þessa skal bera hann undir Héraðsdóm Reykjavíkur.

 

[/et_pb_text][/et_pb_column][/et_pb_row][/et_pb_section]